|
|
03.07.2006 15:11:43 / krebels
Sigrún
Kristinsdóttir
f. 12 mars 1986 d.
02. júlí 2006
Elsku Sigrún mín, guð geymi þig og hvíldu í friði
elsku besti engillinn minn, ég elska þig svo ótrúlega mikið :*
Úff, ég veit ekki hvernig ég á að fara að því að
lifa án þín elskan mín :'(
Þín vinkona að eilífu, Sabbó :'*
Bendi fólki á að fara á
http://blog.central.is/bendover
»
20.03.2006 21:18:48 / krebels
Jájá, það eru alltaf fullt af fólki að kíkja á þessa síðu þó að hún
sé ekki búin að vera í gangi í soldið langan tíma og það er bara
mjög fínt..
Við ættum kannski að vera duglegri að blogga hérna, en ég hvet
ykkur endilega til að kíkja á Bendover síðuna.. 
Og kvittakvittakvitta
Skal verða duglegri að gera eikkvað hérna..
Heyri í ykkur beibís..
Sabbó -aðhorfaáIdolið-
»
21.02.2006 20:21:51 / krebels
»
15.02.2006 21:14:06 / krebels
Hvað er í gangi, teljarinn er að rjúka upp..
Kommentið og segið mér hvað er í gangi eila
Sabbó -forvitin-
»
07.02.2006 23:21:32 / krebels
Hello my babies..
Þá er maður komin heim og kallinn farinn á sjó, ekkert gaman að
því.. 
Hlakka til að fá hann heim aftur, þá kemur hann líka og verður í
mánuð, gaman gaman
Það var samt geggjað gaman á Króknum, datt samt bara einu sinni í
það, allavega eikkvað almennilega..  Ætluðum að detta í það á
miðvikudeginum, en það náði engin að verða almennilega fullur nema
hann Gummi Páll 
En Þráinn og Gummi buðu mér og Möggu út að borða á Kaffi Krók á
miðvikudeginum, þessar elskur, nautasteik, rauðvín og allt.. :*
Á fimmtudeginum ætluðum við svo að gera eikkvað, en ég endaði á því
að keyra allt helvítis kvöldið nema þennan klukkutíma sem við vorum
á Barnum..
Þráinn náði að verða tölvuert ölvaður, steindrapst þegar við komum
heim og sagði svo við mig þegar hann vaknaði hvað það væri skrýtið
að hann hefði drepist afþví að hann ekkert verið fullur.. Ég held
að tvífari hans hafi þá bara verið með mér um kvöldið 
En já, svo fórum við á þorrablót hjá Málmeynni á föstudeginum, það
var alveg ágætt, ekkert meira en það samt.. Stoppuðum ekki lengi
reyndar, fórum fljótlega á Barinn og ég varð allsvakalega ölvuð og
ég og Magga stóðum okkur eins og hetjur á dansgólfinu.. Minnir mig

Svo var laugardagurinn bara tekin í leti, nenntum ekkert að gera
nema glápa á vídjó aaaaallan daginn.. Það var voða gott að kúra
bara og vera svo hress á sunnudeginum, hefði ekki nennt að keyra
þunn heim.. Hann fór svo á sunnudeginum á sjó, hata sjóinn
En nóg um hatur mitt á sjónum.. Ég er ekki búin að gera mikið síðan
ég kom heim, bara vinna vinna vinna.. Er svo að fara í klippingu,
litun og strípur á morgun, ég veit ekkert frekar en vanalega hvað
ég á að gera við helvítis hausinn á mér.. Kommentiði og segið mér
hvernig ég á lita og klippa, alltaf gott að fá hugmyndir 
Nenni ekki að vera alltaf með eins, langar að breyta..
Heyrðu jú, eitt sem ég er búin að vera dugleg við að gera síðan ég
kom heim er að éta.. Ég held að ég eigi við alvarlega átfíkn að
stríða, ég barasta get ekki hætt..
Sem betur fer brenni ég hratt þannig að ég er ekki að fitna, en ef
að ég gerði það ekki þá væri ég sennilega 352 kíló núna og væri
afvelta í skurði einhversstaðar.. 
Verð að fara að hætta þessu áður en að ég fæ kransæðastíflu eða
eikkvað annað helvíti..
Hvað segiði svo um að senda Silvíu nótt í Evrovision..?
Mér er þannig séð alveg sama, er hætt að fylgjast með þessu með
einhverjum gríðarlegum áhuga.. Evrovision fylleríin eru samt best,
þessvegna nenni ég að horfa á þetta.. En held að það væri fyndið að
senda hana, eikkvað sem allir eiga eftir að muna eftir og ég held
að við fáum fleiri stig en ef við sendum einhvern gaulara og láta
hann standa eins og hálfvita uppá sviði að orga eikkvað sem engin
nennir að hlusta á..
ÁFRAM
SILVÍA!!!
Kötturinn borðaði svefntöflu í gær.. Sem er ekki fyrir ketti.. Og
það var geðveikt fyndið, velti sér útum allt og var geggjað
fyndin..
Skemmti mér konunglega við að horfa á hana úturdópaða.. Mæli með
því að dópa kettina ykkar ef að þið eigið ketti..
Nei grín, þetta voru ekkert sterkar töflur og ekkert hættulegt, ég
lofa
Dust in the wind er svo geðveikt lag, var að horfa á Old school og
þá enduruppgötvaði ég þetta lag.. Geeeeðveikt fallegt..
En ég held að ég sé búin að bulla nóg, ætla að fara í sturtu og já,
það gæti verið að ég fái mér jafnvel eikkvað að éta.. I am so
weak..
Heyri í ykkur beibís..
Sabbó -með átsýki á hæsta stigi-
Ps. Var klukkuð og það er hérna fyrir neðan..
»
07.02.2006 23:20:06 / krebels
Bróðir minn var svo sætur að klukka mig eða hvað sem þetta
heitir..
Vessgú:
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
- Í fiskvinnslu (ekki jafnspennandi og það hljómar)
- Bónus (alveg eins spennandi og það hljómar)
- Bakarameistaranum Suðurveri
- Skagfirðingabúð
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
- Napoleon Dynamite
- Crash
- Biodome (Pauly Shore er klárlega bestur í heiminum)
- Svo er ég sökker fyrir gömlum hryllingsmyndum
Fjórir staðir sem ég hef búið á: (ætla að telja upp
uppáhaldsstaðina)
- Sauðárkrókur
- Borgarfjörður (eystri)
- Noregur
- Akureyri
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
- Friends (ofcourse)
- O.C (Þegiði Hákon og Binni)
- Family guy
- That 70's show
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Sommerland (man ekki í hvaða bæ það var)
- Annars hef
- ég bara
- verið á Íslandi

Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíður):
- Hotmail (Þegar Þráinn er á sjó)
- Spámaður
- Oft þarf ég að Googla
- Einhverjar leikjasíður þegar mér leiðist
Fernt matarkyns sem ég held uppá:
- Kjötsúpan ömmu í Melgerði
- Kjúklingarétturinn hans pabba
- Hamborgarhryggurinn sem mamma gerir um jólin
- Steikin sem við í Kokkar án klæða elduðum síðustu tvö áramót

Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:
- Séð og heyrt
- Morgunblaðið
- Vikan
- Sirkus
Fjórir staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:
- Sleikjandi sólina í útlöndum
- Þar sem Þráinn er (ég veit, ég er líka að drepa mig úr
væmni)
- Í sturtu, nenni bara ekki alveg strax
- Á tónleikum með Pearl Jam
Fjórir bloggarar sem ég klukka:
- Anna María :*
- Jón Laukur (fyrirgefðu, en ég varð)
- Elva Rún a.k.a Húðhaus

- Sigrún (my muffin) :*
»
02.02.2006 09:59:08 / krebels
»
31.01.2006 19:57:25 / krebels
Ætli það sé komin tími á að ég (Sabbó) bloggi örlítið..?
Man nú ekkert eftir neinu merkilegu afþví að það er svo gífurlega
langt síðan ég bloggaði að ég man ekkert hvað ég er búin að vera að
gera allan þennan tíma
Er sosem ekki búin að vera að gera mikið, brjálað að gera í
vinnunni útaf því að það vantaði alltaf nýja stelpu til okkar en
það er loksins komin ein sem að ég held að sé ekkert á leiðinni að
hætta strax
Ég og Sigrún erum nú alveg búnar að djamma smá en það er hægt að
lesa um það allt fyrir neðan.. Sigrún er búin að standa sig
aaaðeins betur í blogginu en ég
En ég get sagt ykkur frá því að á laugardaginn fékk ég smá
skyndihugdettu um að skreppa bara á Krókinn að djamma og að
sjálfsögðu skelltum við okkur bara, án þess að hafa nokkra hugmynd
um hvort að það væri eikkvað í gangi eða hvað við værum eila að
fara að gera og peningalausar.. Svolis á það að vera
En það rættist bara tussuvel úr þessu kvöldi, ölvun varð þónokkur
og við dönsuðum af okkur rassgatið eins og okkur einum er lagið

Við lentum í einhverjum óóógeðisgaur sem ég var búin að hrinda í
burtu frá okkur geggjað lengi en fokkin gaurinn var bara ekkert að
fatta það að við vildum ekki dansa við hann.. Það endaði næstum í
slagsmálum, en þetta fór allt vel
Svo þegar allt var búið á Barnum þá vissum við ekkert hvað við
ættum að fara að gera þannig að við fórum bara heim til Jón Hauks
og sátum tvær drukkum smá vodka inní einhverju herbergi sem við
fundum (einu af milljón, hjúmongus hús)
Húsið er það stórt að Jón var sofandi á efstu hæðinni og heyrði
ekkert í okkur.. 
En já, svo kíktu Kalli og Hákon á okkur í smátíma og við sátum bara
að spjalla og Kalli söng nokkrum sinnum fyrir okkur og allt..
Ég og Sigrún fórum svo að lúlla saman í soldið litlu rúmi, en við
erum svo nettar að það var nú lítið mál  Mér fannst það nú soldið
óþægilegt samt þegar ég vaknaði og ég hélt að ég væri að drepast úr
hita, það var ekki gott..
Við skruppum svo aðeins í heimsókn til Elvu áður en við fórum heim
og það var voða kósý þó að hún hafi nýbúin að vera með ælupest
Svo er ég nú ekki búin að gera neitt nema vinna og er svo að fara á
Krókinn á morgun afþví að Þráinn minn er að koma heim af sjónu,..
Loooooksins.. 
Eeeeen svo fer hann aftur á sjó á sunnudaginn  Sökks
ass..!!
En ég ætla að fara og vera hjá honum þangað til á sunnudaginn, ég á
bestu yfirmenn í heimi sem að redda mér alltaf ef að ég þarf frí
Hey, ef að þið eruð ekki búin að sjá Napoleon Dynamite þá verðiði
að sjá hana, fyndnasta mynd sem er til.. Eða kemst allavega á topp
10 
Gosh..
Og Sillan mín á afmæli í dag, til hamingju aftur sæta mín :*
(Ég var fyrst til að hringja í hana og óska henni til hamingju með
ammlið, ég er klárlega best) Njóttu afmælisdagsins elskan mín, love
you :*
En ég ætla að fara að dangla í ömmu eða eikkvað og svo að taka til
í bílnum hans Þráinns áður en að hann fær að setjast uppí hann

Reyna að þvo einhvern þvott svo að ég þurfi nú ekki að vera nakin
allan tímann á Króknum..
Heyri í ykkur fljótlega elskurnar ..
Sabbó -ógla spennt-
»
20.01.2006 14:03:38 / krebels
Svo við séum nú ekki verstu
bloggarar í veröldini eins og Elli orðaði það, þá ætla ég að
blogga e-ð smá þar sem Sabbó er ekki alveg að standa
sig
Eins eins og þið lásuð á eldri
færslum þá skeltum við Sabbó okkur suður seinustu helgi og það var
bara mögnuð helgi, Byrjuðum á að fara til Ketils bróðurs þegar
við komu til rvk, tókum okkur til, Sæun náði siðan í okkur, náðum í
Önnu Maríu og í e-ð partý til Sæunar. Okkur Önnu leið eins og ösnum
þekktum engan, en það breyttist fljótt eftir að við byrjuðum að
drekka, svo fórum við í drykkjuleik og ég er svona mikið að spá í
því að hætta öllum drykkjuleikjum, þeir enda aldrei vel hjá mér .
Svo þegar lengra leið á kvöldið þá náði Valli í okkur, svona 40 mín
eftir að ég hringdi í hann, allar voða vel klæddar NOT og að frjósa
úr kulda eftir að bíða eftir honum . Svo þegar við vorum á
leiðini niðrí bæ byrjaði mér að vera svona gríðarlega óglatt og var
ekki alveg til í að fara e-ð, þannig að Sabbó og Anna fóru á
hverfis og ég ætlaði mér að fara heim en neinei Valli vildi ekki
skutla mér heim þvi hann var nýbúinn að ná í mig þannig ég var
dregin inná Pravda, sat það í horninu og drakk vatn, JEY,
Ömurlegt kvöld, eða réttarasagt eftir að við fórum frá Sæuni. Svo
steinrotaðist ég þegar ég kom heim til Ketils.
Á laugardeginum kíkktum við
Sabbó í kringluna, keypti mér 2 peysur, ekki hettupeysur, taka það
skírt framm hehe, Siðan fórum við heim, ég skelti mér í
sturtu og við tókum okkur til, náðum í Önnu og brunuðum til
Keflavíkur. Við leigðum okkur hótel herbergi á hótel keflavík ,
það var ódýrara en að taka leigubíl framm og til baka, herbergið
var mjög fínt og kostaði lítið þvi við vorum 4, Ég, Sabbó, Anna og
Stefý. Svo röltuðum við á Traffic,það var nú ekki mikið um mannin
þar þegar við komum, en svo varð allt stappað, það var frí bolla og
ekki lét ég hana í friði , þangað til hún kláraðist. Elli(Það
var mjög gaman að hitta þig aftur siðan um jólin ) og
einhverjir gaurar úr herra ísland og stefý sátu á einhverju borði
þarna þannig við hlömmuðum okkur niður hjá þeim, svo byrjaði Árni
að dj ast og ég steig varla fæti af dansgólfinu,þetta var algjör
snild, Ég er búin að finna draumaprinsinn og ég ÆTLA mér að fá
hann HAHAHAHAHA good luck to me. Sabbó elskan fór heim á undan
okkur vegna hausverkjar, okkur er ekki ætlað að djamma saman í
rvk. Svo þegar djammið var á enda löbbuðum við stelpurnar í
10-11, skiltið þar á asnalegasta stað , keyptum okkur e-ð þar,
svo þegar við vorum komnar uppá hóel ákváðum við Anna að skella
okkur í morgunmat, fullar og æðislegar en það var bara fyndið og ég
efa að ég eigi eftir að sjá þetta fólk aftur, Þannig að þetta
kvöld var geðveikt skemmtilegt og ég vil bara segja takk fyrir mig
allir. Eftir helgina vinna vinna, skóli skóli, svo fórum ég og
Eva uppí fjall í gær á gönguskiði svo hittum við Auði, þetta var
semsagt útivist við ákváðum ekki að skella okkur uppúr þurru á
gönguskíði hehehe, og gönguskíði eru ekki fyrir mig, ég datt bara
þegar ég stóð kyr og var að tala við stelpurna , en það var bara
fyndið,Svo um kvöldið fór ég til Dagnýar með hnút í maganum því
splash var í sjónvarpinu i gær og mér kveið smá fyrir ef það kæmi
e-ð brot af mér að dansa en við sáumst bara e-ð pínu vera að labba
þannig það var ágætt.
en jæja ég
er að fara að vinna á eftir, líka á morgunn og hinn, amfælispartýið
hennar Dagnýar er á morgunn og mér hlakkar geðveikt til að
fara , ef ég fæ frí, kemur allt í ljós
En jæja þetta er komið alltif
mikið þannig ég ætla að enda þetta, Þangað til næst
Sigrún
»
18.01.2006 01:16:08 / krebels
Var að henda inn nokkrum myndum í viðbót, ekki samt næstum
öllum..
Geri það á morgun og þá kemur líka blogg
Sabbó -þreytta-
»
13.01.2006 02:58:52 / krebels
Smellti inn nokkrum myndum, nennti ekki að setja allar afþví að
þetta tekur fáránlega langann tíma ..
Set hinar inn eftir helgi.. Oooolræææt...
Djamm alla helgina, hvet alla til þess..
Heyrumst eftir helgi beibís
Sabbó -fæ ekki nóg af djammi-
»
13.01.2006 01:03:39 / krebels
langt síðan síðast en jæja skólinn er
byrjaður JEY stundaskráin mín er nú alveg þokkaleg, fæ að
sofa til 11 tvo daga vikunar, ekki slæmt mjög sátt með
það, Dagný gella er komin í skolann og það gerir hvern dag í
skólanum betri Mér lýst svona ágætlega á þetta allt saman,
nema kannski sálfræði, konan lætur okkur setjast í hring og e-ð
rugl og ég er ekki mikið fyrir það verð samt að segja frá
einu, annan daginn minnir mig þá var ég e-ð að flýta mér í tíma
og settist inní einhverja stofu, beið þar í smá stund og svo kom
kennarinn, svo byrjaðu hún að lesa upp og ég skildi ekkert
afhverju nafnið mitt var ekki á listanum en jæja, svo kom hún
með kennsluáætlunina og byrjaði svo e-ð að tala um áfangann og
mín skildi sko ekkert afhverju þetta var svona auðvelt, svo fór
ég e-ð að lesa á kensluáætlunina og þar stóð enska 102, og ég
bara WHAT, spurði stelpuna við hliðin a mér, á ekki að standa
hérna 403? neinei haldið ekki að ég hafi verið stödd í
kolvitlausum stað og það var fullur bekkur og ég
drulluskammaðist mín þegar ég var að labba út svo var eg svo
stressuð að ég fann ekki stofuna sem ég átti að vera í þannig ég
fór heim ekki nó með það, fór í fyrsta tíman minn í sálfræði,
konan ákvað að sýna hvernig fólk talar við fólk í hjólastól, því
það talar alltaf mikið hærra og er alltaf að snerta það og e-ð
og spurði hvort það væri einhver í bekknum sem vildi hjálpa
henni og engin sagði neitt, og auðvitað mundi hún nafni mitt því
við heitum það sama, þannig ég fór með stólinn minn fyrir framan
ALLAN bekkin roðnaði niður í rassgat meðan hún var e-ð að snerta
á mér andlitið og tala geðveikt hátt við mig heppnin fylgir
mér ha alltaf gaman hjá mér.
En svo er ég bara búin að vera að vinna komin með langt uppí kok
að steikja hamborgara og ég ætla sko ekki að vera þarna í sumar
takk fyrir pent Eva er sú eina sem heldur manni lifandi þarna og
við vinnum ekkert svo oft saman
En nó komið að væli, helgi framundan og við Sabbó erum á leiðini
suður AVÚHÚÚÚ það verður BARA geðveikt, ætlum að kíkka e-ð í bæinn
á morgunn og svo er stefnan tekin til Keflavíkur í splash partý
þeir sem horfðu á þáttin í kvöld þá komu fram helling af brjóstum
og stelpur að flassa, Ég ÆTLA EKKI að koma fram í næsta þætti með
brjóstin hér og þar og allstaðar þótt ég væri alveg vís til þess að
flassa framan í einhverjar myndavélar þegar ég er komin vel í
glas en ég ætla rétt að vona að ég hafi vit að gera það ekki, vil
ekki sitja fyrir framan snjónvarpið í næstu viku svo bara Hey er
þetta ekki Sigrún sem er að flassa hehehe Stelpur þið passið
mig en jæja elskurnar þetta er komið nó, Sabbó er að setja
inn myndir síðan milli annan í jólum og ný árs þannig endilega
fylgist með því, fullt af skemmtilegum myndum þar á ferð
HEHEHEHE  En jæja ætla að byrja að henda ofan í
tösku, og fara síðan að sofa, við bloggum eftir helgi um
helgina,þanngað til næst
Sigrún flasser (DJÓK)
»
02.01.2006 16:07:13 / krebels
Jæja þá er ég komin heim
eftir viku á króknum, og þessi vika var hreint út sagt frábært!
Ég, Sabbó og Elva brunuðum á krókinn á máudaginn, þegar heim var
komið til Elvu þá var tekið sig til og byrjað að sturta í sig
Það var smá teiti heima hjá Elvu og við vorum nú alveg þó nokkur
þar, Þegar allir voru orðnir vel hressir og aðrir búnir að ífa
hárið aðeins þá var skelt sér á diskó ábarnum, Ég skemmti mér
alveg ótrúlega vel þá 2 klukkutíma sem ég man hehe Síðan
fór ég heim til Elvu og þá man ég valla meir, mér tókst allavega
að hlaupa út á táslunum og fá glerbrot uppí hælinn Það var
ekki gott, Elva var svo góð að setja plástur á báttið áður en
hún henti mér í rúmið sem við komumst síðan að daginn eftir að
hann hafi verið á vitlausum stað hehe jæja daginn eftir
var ég að drepast í löppini og Anna var svo góð við mig að fara
með mér uppá spítala að láta kroppa það úr og það var ekki
gott svo var bara einhver leti í gangi
og síðan tekið sig til og farið í smá partý og á barinn og kaffi
krók en það var eiginlega engin úti allir örugglega að jafna sig
eftir annan í jólum, síðan var kíkkt aftur í teitið og svo
“heim”
daginn eftir man ég ekkert hvað við gerðum...
allavega um kvöldið fórum við nokkrar að spila og það var mjög
gaman, spiluðum kana frá 9 til hálf 1: kíkktum siðan e-ð á
rúmtinn og svo heim að lúlla. Dagurinn eftir að e-ð svipaður
gerðum e-ð minna, fór í neglur og mer er strax búið að takast að
brjóta eina. Síðan um kvöldið var bjórkvöld, ÚFF!! Arna gella
kom og á leiðini út flaug hún niður stigan eins og í myndum, fór
í kollhnís og e-ð og ég fékk hjartaáfall varð skíthrædd, sabbó
hljóp niður og þar lá hún hlæjandi!! Arna þú ert æði síðan
fórum við á barinn, borguðum 1500 inn ig máttum drekka eins
mikið og við vildur til 2 og ég fékk mér nokkra, hef örugglega
aldrei veið janft fljót með bjóra eins og þarna hehe þetta var
bara gaman. Eftir barinn fórum við síðan nokkur til Snorra og
það var bara fínt, eða ætti ég kannski að segja að það hafið
verið mjög fínt Síðan fórum við til
Sverris vorum þar í pínu og ég var komin heim um 9, rölti
fyrst í bakaríið og fór svo að lulla jæja
daginn eftir það gerðum við e-ð minna, sumir með hausverk og
sonna, svo um 5 leytið byrjuðum við Elva að elda og það
heppnaðist allt vel, þetta var bara ljómandi gott síðan
tókum við okkur til fórum heim til Sunnu, fórum í e-ð
drykkjuspil og ég er ekki frá því að ég muni aldrei fara í
það spil aftur, maður þambaði og þambaði og allir byrjðir að
finna vel á sér eftir það síðan var byrjað að skjóta
upp og við stóðum úti og horfðum á, þetta var geðveikt flott,
eftir það tókum við leigubíl í bæinn og fórum á barinn á
ball, það var ágætt, hef skemmt mér betur en þetta var samt
mjög fínt, þangað til í lokin !!!! ég var e-ð að spyrja
stelpurnar hvort ég ætti að hella smá bjór ofaná hausinn á
einni manneksjuni þarna, svo kom stelpa og ætlaði bara að
gera það fyrir mig, kemur svo til mín og segist sko ekki ætla
að btjóta flösku á hausnum á manneskjuni!!!!!!!!!! WHAT hver
var að taka um að brjóta flösku á hausnum á einhverjum??????
Ég myndi ALDREI gera það sama þótt ég myndi hata eimhvern
ógeðslega mikið!!!! Þannig að ég ætla að taka það skírt fram
þar sem ég veit að þessi manneskja les bloggið okkar þá
ætlaði eg ALDREI að brjóta flösku á hausnum á þér og bað
heldur engan annan um það!!!!!!!!! Takk fyrir pent!! Svo
þegar ballið var búið þá var mín orðin nett brjáluð og gerði
ýmislegt sem ég sé EKKI eftir, er fullkomlega sátt með allt
saman, ég fór út bakdyra megin því Elva og Dagný þorðu ekki
að láta mig fara út aðalmeiginn, en ég komst að því þetta
kvöld þótt ég viti það alveg, þá á ég BESTU vínkonur í heimi
og mér þykir óendanlega vænt um ykkur allar, LOVE YOU :*:*
Síðan fórum við þráinn í partý, Sabbó komst ekki með þvi hún
var að drepast í mallanum sínum, það var samt ekkert
klósett vandamá , e-ð annað sem við vitum ekkert hvað
var. Svo fór ég .......Síðan til Gumma og Elvu, þar var læst
ég mjög sátt, NEI!! Fór til Þráins og Sabbó og fekk að lúlla
þar, með mitt yndislega nef (Sorry Þráinn) daginn eftir
gerðum við ekkert!! Borðuðum þynkumat, fórum heim og horfðum
á sjónvarpið allt kvöldið, fór snemma að sofa, vaknaði snemma
keyrði heim, er að drepast úr hálsbólgu , þetta er komið
meira en ALLTOF mikið, þannig ég ætla að ljúka þessu með að
segja gleðilegt nýtt ár allir saman og hafið það sem best á
árinu 2006
kveðja Sigrún
»
26.12.2005 02:24:29 / krebels
Jújú, aðfangadagur búin og mesta stressið líka.. Þetta voru rosa
góð jól, ég, mamma og bróðir minn bara þrjú í kotinu og voða kósý..
Þó að við við værum soooldið sein með matinn og allt, þá er það nú
bara í lagi
Borðuðum ótrúlega góðan mat, kannski aðeins of góðan, ég át á mig
gat eins og ég á nú reyndar til að gera á jólunum  Það voru fáar,
en mjög góðar gjafir..
Ég fékk úr og hálsmen frá pabba, annað úr frá Elvu Rún og svo
gjafabréf frá 17 uppá 30.000 og geggjað hálsmen frá Þránni (já,
hann er brjálaður) 
Svo á ég eftir að fá 3 eða 4 gjafir, gaman að sjá hvað það verður
Ég gaf eila engar jólagjafir, bara mömmu og bróðir mínum.. Hinir fá
gjöf í janúar 
Gaf mömmu geisladisk og ég og mamma gáfum bróðir mínum PSP..
Djöfuls pening sem það kostar..
Svo var hún Sæunn mín að hringja og hún var að segja mér að hún var
að trúlofa sig í gær, ég fékk alveg gæsahúð þegar hún var að segja
mér frá þessu, þetta var svo fallegt eikkvað.. Bara aftur innilega
til hamingju elskan mín :*:*:*
Ótrúlegt að ein af okkur vitleysingunum sé að fara að gifta sig
Svo var dagurinn í dag bara voða tjillaður, amma og Svenni frændi
minn komu í mat og það var mikið stuð  Ég og Sigrún vorum svo
bara eila að koma heim núna, fórum heim til Elvu Rún og spiluðum
gettu betur sem ég rúúústaði.. Eða ekki, ég er ekki mjög góð í
þessu spili.. Þeir sem voru eikkvað útá Villa Nova þegar ég bjó þar
vita að mér líkar ekki mjög vel við svona spil.. Finnst þau
yfirleitt ekkert skemmtileg og varð mjög geðvond ef að fólkið vildi
endilega spila, en það samt voða gaman núna.. Við erum nottla með
eindæmum skemmtilegar og ruglaðar stelpur
En svo er stefnan tekin á Krókinn á morgun og planið er að láta
ekki mikið renna af sér
Von að spila á balli á morgun og Elva búin að bjóða mér og Sigrúnu
í mat, voða fínt, hlakka geggjað til
Það er ekki víst að það verði bloggað mikið á milli jóla og nýárs,
ég kannski fæ að stelast í tölvunna hans Þráinns eikkvað ef að
maður verður eikkvað í ástandi til þess..
En ég ætla að fara að taka mig til fyrir morgundaginn, þarf að vera
vöknuð snemma og nenni pottþétt ekki að taka mig til á morgun..
Heyrðu já, plenty af fólki að kíkja á síðunna á dag en samt
kommenta fáir og engin skrifar í gestabókin.. Koma svo fólk, segið
mér hverjir eru að kíkja á okkur
Við heyrum í ykkur bráðlega beibís :*
Sabbó -ótrúlega ánægð með lífið núna-
»
24.12.2005 14:00:26 / krebels
Jæja elskurnar, jólin eru komin strax aftur..
Ég sendi engin jólakort þetta árið og þið bestu vinir mínir fáið
pakka í jan. sökum peningaleysis í des.
En við rebelin ætlum bara að óska ykkur gleðilegra jóla og við
sjáumst eldhress á nýju ári er það ekki..?  Þið sem eruð á
Króknum sjáum við nú samt eftir 2. daga og við verðum að sjálfsögðu
eldhress þar
Komin tími til að klára þetta blessaða jólavesen og ég heyri í
ykkur kannski í kvöld..
Hafiði það gott og ekki éta á ykkur gat :*
Sabbó -komin í smá jólaskap-
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|